Fréttir

Hjónabandið fór ekki vel af stað hjá Fowler
Allison Stokke og Rickie Fowler.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
þriðjudaginn 12. nóvember 2019 kl. 17:09

Hjónabandið fór ekki vel af stað hjá Fowler

Fyrstu vikurnar sem giftur maður reyndust Rickie Fowler ansi erfiðar ef svo má að orði komast. 

Fowler, sem verður 31 árs eftir um mánuð, giftist Allison Stokke 5. október í síðsta mánuði. Í brúðkaupsferðinni lenti Fowler í því að ná sér í matareitrun með tilheyrandi óþægindum.

„Þetta var ekki skemmtilegt tímabil,“ sagði Fowler um veikindin. Fowler og Stokke giftu sig í Mexíkó og var brúðkaupsferðin farin strax í framhaldinu á afskekktar stendur. 

Heilsa Fowlers hefur verið upp á við undanfarnar vikur en hann þurfti þó að draga sig úr leik á Mayakoba Golf Classic mótinu sem hefst nú á fimmtudaginn.