Fréttir

Hrökk í gang á síðustu 9 holunum
Föstudagur 3. febrúar 2023 kl. 18:37

Hrökk í gang á síðustu 9 holunum

Guðrún Brá Björgvinsdóttir hrökk í gang á síðustu 9 holunum á Magical Kenya Ladies Open. Guðrún hóf leik á 10. teig í dag og fór illa af stað. Hún fékk einungis 3 pör á holum nr. 10-18 og lék á 44 höggum. Á holum 1-9 lék hún frábært golf, fékk 3 fugla, 2 skolla og 4 pör og lauk leik á einum undir pari 36 höggum. Hringurinn samtals á 80 höggum eða 4 betri en í gær. 

Guðrún lauk leik á 18 höggum yfir pari, en niðurskurðarlínan var við 9 högg yfir pari.

Aditi Ashok frá Indlandi er með örugga forystu á 9 höggum undir pari eftir hringina 2.