Fréttir

Ingvar í 12. sæti á Ólympíuleikunum
Hulda Clara Gestsdóttir og Ingvar Andri Magnússon. Mynd: ÍSÍ
Fimmtudagur 11. október 2018 kl. 12:00

Ingvar í 12. sæti á Ólympíuleikunum

Ingvar Andri Magnússon og Hulda Clara Gestsdóttir, bæði úr GKG, eru nú búin með tvo hringi á Ólympíuleikum ungmenna sem fer fram í Buenos Aires í Argentínu.

Ingvar Andri hefur leikið aðeins betur en Hulda en hann er í 12. sæti í strákaflokki á 7 höggum yfir pari í heildina. Ingvar lék annan hring mótsins á 73 höggum eða þremur höggum yfir pari.

Hulda Clara er samtals á 23 höggum yfir pari eftir tvo hringi þar sem hún hefur leikið á 81 og 82 höggum. Hulda er í 25. sæti í stúlknaflokki.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.

Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskir kylfingar keppa á golfmóti sem tengist Ólympíuleikunum. Jussi Pitkanen, afreksstjóri GSÍ, er með í för en alls eru níu keppendur frá Íslandi á leikunum.

Ólympíuleikar ungmenna (The Youth Olympic Games, YOG) eru ætlaðir fyrir ungt afreksfólk í íþróttum á aldrinum 14 til 18 ára. Keppt er í mörgum greinum og skiptast leikarnir í sumarleika og vetrarleika eins og Ólympíuleikar fullorðinna.

Ísak Jasonarson
[email protected]