Fréttir

Íslenska liðið vann sig upp um eitt sæti á milli hringja
Heiðrún Anna lék vel á öðrum keppnisdegi. Ljósmynd: GSÍ/Sigurður Elvar Þórólfsson
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
miðvikudaginn 6. júlí 2022 kl. 22:37

Íslenska liðið vann sig upp um eitt sæti á milli hringja

Það er mikið um að vera hjá landsliðskylfingunum okkar í vikunni en Evrópumót landsliða fara fram hér og þar um álfuna í mismunandi aldursflokkum. Alls eru 528 keppendur á EM mótunum frá 29 þjóðríkjum.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur þar sem að fimm lægstu skorin hjá hverju liði telja. Liðunum er raðað upp í riðla eftir árangri í höggleiknum, átta efstu liðin leika í holukeppni í A-riðli um Evrópumeistartitilinn og önnur lið leika um sætin þar fyrir neðan. Í B-riðli er leikið um sæti 9.-16 og í C-riðli um sætin þar fyrir neðan.

Í holukeppninni eru leiknar tvær umferðir á dag. Í fyrri umferðinni eru leiknir tveir fjórmenningsleikir (Foursome) þar sem tveir leikmenn leika gegn tveimur öðrum leikmönnum og hvort lið leikur einum bolta. Eftir hádegi eru leiknir fimm tvímenningsleikir, þar sem einn leikmaður leikur gegn öðrum leikmanni.

Evrópumót kvennalandsliða fer fram á Conwy vellinum í Wales. Þetta er í fyrsta sinn sem mótið fer fram á þessum velli en 20 þjóðir senda lið til keppni á EM að þessu sinni.

Conwy völlurinn í Wales. Ljósmynd: ega-golf.ch

Íslenska liðið sat eftir fyrsta keppnisdaginn í 16. sæti. Þær léku samtals á skori sem telur 25 högg yfir par vallarins. Leik á öðrum keppnisdegi er lokið. Okkar konur lyftu sér upp um eitt sæti í 15. sæti og leika því í B-riðli holukeppninnar. Fyrsti leikur hefst rétt fyrir klukkan 10 í fyrramálið á íslenskum tíma. Ísland leikur gegn Hollandi.

Um Evrópumeistaratitilinn leika í 8-liða úrlsitum:

England - Wales

Skotland - Svíþjóð

Þýskaland - Ítalía

Danmörk - Spánn

Staðan á mótinu

Íslenska kvennalandsliðið skipa þær Saga Traustadóttir úr GKG, Heiðrún Anna Hlynsdóttir úr GOS, Andrea Bergsdóttir úr GKG, Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir úr GR og Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR. Liðsstjóri er Heiðar Davíð Bragason.

Efri röð frá vinstri: Árný Árnadóttir sjúkraþjálfari, Saga Traustadóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, Heiðar Davíð Bragason liðsstjóri. Neðri röð frá vinstri: Hulda Clara Gestsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Ljósmynd: EGA