Fréttir

Jack Nicklaus - meistari meistaranna
Jack og eiginkona hans Barbara.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
þriðjudaginn 28. september 2021 kl. 14:23

Jack Nicklaus - meistari meistaranna

Eins og flestir vita er Jack Nicklaus sá kylfingur sem flesta risatitla hefur unnið í golfinu, 18 talsins. Hann átti ótrúlega farsælan feril innan sem utan vallar og er þekktur heiðursmaður.

Bandaríska golfsambandið gaf út skemmtilega heimildarmynd um þennan mikla meistara fyrir um tveimur árum. Myndbandið er hin besta skemmtun og mikill fróðleikur.