Fréttir

Karlalandsliðið leikur í B-riðli á EM
Hákon Örn Magnússon lék best íslensku kylfinganna á öðrum keppnisdegi. Ljósmynd: GSÍ/Sigurður Elvar Þórólfsson
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
miðvikudaginn 6. júlí 2022 kl. 21:25

Karlalandsliðið leikur í B-riðli á EM

Það er mikið um að vera hjá landsliðskylfingunum okkar í vikunni en Evrópumót landsliða fara fram hér og þar um álfuna í mismunandi aldursflokkum. Alls eru 528 keppendur á EM mótunum frá 29 þjóðríkjum.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur þar sem að fimm lægstu skorin hjá hverju liði telja. Liðunum er raðað upp í riðla eftir árangri í höggleiknum, átta efstu liðin leika í holukeppni í A-riðli um Evrópumeistartitilinn og önnur lið leika um sætin þar fyrir neðan. Í B-riðli er leikið um sæti 9.-16 og í C-riðli um sætin þar fyrir neðan.

Í holukeppninni eru leiknar tvær umferðir á dag. Í fyrri umferðinni eru leiknir tveir fjórmenningsleikir (Foursome) þar sem tveir leikmenn leika gegn tveimur öðrum leikmönnum og hvort lið leikur einum bolta. Eftir hádegi eru leiknir fimm tvímenningsleikir, þar sem einn leikmaður leikur gegn öðrum leikmanni.

Karlalandslið Íslands leikur á hinum goðsagnakennda Royal St. George’s velli á Englandi en Opna mótið hefur 15 sinnum farið fram á vellinum, síðast á síðasta ári.

Royal St. George’s á Englandi. Ljósmynd: Facebook/EGA Golf

Íslenska liðið sat eftir fyrsta dag í 16. sæti. Þeir léku samtals á skori sem telur 13 högg yfir par vallarins. Danska liðið leiddi eftir fyrsta hring á samtals 6 höggum undir pari.

Leik á öðrum keppnisdegi er lokið. Íslenska liðið situr sem fastast í 16. sætinu og leikur því í B-riðli holukeppninnar. Okkar menn verða ræstir út í fyrsta leik gegn hollenska liðinu rétt fyrir klukkan átta í fyrramálið.

Um Evrópumeistaratitilinn leika í 8-liða úrlsitum:

Spánn - Írland

Þýskaland - Danmörk

England - Ítalía

Frakkland - Svíþjóð

Staðan á mótinu

Lið Íslands skipa þeir Daníel Ísak Steinarsson úr GK, Kristófer Orri Þórðarson úr GKG, Sigurður Bjarki Blumenstein úr GR, Aron Emil Gunnarsson GOS, Hlynur Bergsson úr GKG og Hákon Örn Magnússon úr GR. Ólafur Björn Loftsson er landsliðsþjálfari og fylgir liðinu á mótinu. Hann er einnig afreksstjóri GSÍ.

Aron Emil Gunnarsson, Daníel Ísak Steinarsson, Kristófer Orri Þórðarson, Hákon Örn Magnússon, Hlynur Bergsson, Sigurður Bjarki Blumenstein og Ólafur Björn Loftsson landsliðsþjálfari og afreksstjóri GSÍ. Ljósmynd: GSÍ/Sigurður Elvar Þórólfsson