Fréttir

Kirk og Simpson efstir þegar Rocket Mortgage Classic er hálfnað
Webb Simpson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 3. júlí 2020 kl. 23:17

Kirk og Simpson efstir þegar Rocket Mortgage Classic er hálfnað

Bandaríkjamennirnir Chris Kirk og Webb Simpson deila forystunni eftir tvo hringi á Rocket Mortgage Classic mótinu sem fer fram á PGA mótaröðinni.

Kirk og Simpson eru báðir á 12 höggum undir pari, höggi á undan næstu kylfingum. Skorin á öðrum keppnisdegi voru mjög lág en þrír kylfingar léku á 8 höggum undir pari, þeir Simpson, Matt Wolff og Ryan Armour.

Simpson hefur verið í miklu stuði á þessu ári en hann hefur nú þegar sigrað á tveimur mótum og er efstur á stigalistanum.

Bryson DeChambeau er einn af sex kylfingum sem deila þriðja sætinu á 11 höggum undir pari. Kevin Kisner og Sepp Straka koma svo næstir á 10 höggum undir pari.

Á meðal þeirra kylfinga sem komust ekki áfram voru þeir Jason Day, Bubba Watson, Patrick Reed, Alex Noren og Charl Schwartzel.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu. Á laugardaginn fer þriðji og næst síðasti hringur mótsins fram.


Chris Kirk deilir forystunni með Webb Simpson.