Fréttir

Ko sigraði á Cambia Portland Classic
Jin Young Ko sigraði sannfærandi í Portland.
Nökkvi Gunnarsson
Nökkvi Gunnarsson skrifar
mánudaginn 20. september 2021 kl. 21:56

Ko sigraði á Cambia Portland Classic

Á LPGA mótaröðinni var mót vikunnar leikið í Portland. Stytta þurfti mótið um einn hring vegna mikilla rigninga á keppnissvæðinu.

Jin Young Ko frá Suður Kóreu sigraði nokkuð örugglega á mótinu á samtals 11 höggum undir pari. Ko sem situr í öðru sæti heimslistans varð fjórum höggum á undan löndu sinni Jeongeun Lee og Su Oh frá Ástralíu.

Fyrir sigurinn fékk Ko sem jafngildir um 27 milljónum íslenskra króna.

Næsta mót Walmart Championship hefst á föstudag í Arkansas en þar á Austin Ernst titil að verja frá síðasta ári.

Lokastaðan í mótinu