Fréttir

Lárus Ingi í toppbaráttunni á unglingamóti í Orlando
Lárus Ingi Antonsson. Mynd: [email protected]
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 5. janúar 2020 kl. 14:01

Lárus Ingi í toppbaráttunni á unglingamóti í Orlando

Lárus Ingi Antonsson GA leikur í dag lokahringinn á Orlando International Amateurs for Juniors sem haldið er á Orange County National golfsvæðinu í Orlando.

Eftir tvo hringi er Lárus á 5 höggum yfir pari og jafn í 5. sæti í flokki 16-18 ára stráka. Síðasti hringur mótsins átti að fara fram á laugardaginn en var frestað vegna veðurs.

Spáin fyrir daginn í dag var töluvert betri og því ljóst að lokahringurinn geti farið fram. Hér fyrir neðan er skorkort Lárusar í mótinu til þessa.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.