Fréttir

Lokaúrtökumótið í beinni - dagur 4
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
mánudaginn 18. nóvember 2019 kl. 09:00

Lokaúrtökumótið í beinni - dagur 4

Fjórði keppnisdagur lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröð karla fer fram í dag á Lumine golfsvæðinu á Spáni. Blaðamaður Kylfings er á svæðinu og mun flytja fréttir af öllu því helsta sem þar fer fram.

Bjarki Pétursson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson leika báðir á Lakes vellinum í dag á meðan Andri Þór Björnsson leikur á Hills vellinum.

Eftir erfiðan dag í gær er ljóst að strákarnir þurfa á góðum hring að halda í dag ætli þeir sér áfram en að loknum fjórða hring verður skorið niður í mótinu og halda þá um 70 kylfingar áfram. Til þess að fá fullan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni þurfa strákarnir okkar að enda í einu af 25 efstu sætunum að sex hringjum loknum.

Bjarki fer fyrstur út af strákunum en hann hefur leik klukkan 9:10 að íslenskum tíma. Andri fer svo út klukkan 9:20 að íslenskum tíma og að lokum fer Guðmundur út klukkan 9:45 að íslenskum tíma.

Golfsamband Íslands í samstarfi við Kylfing verður með skor íslensku keppendanna í beinni á Twitter síðu Golfsambandsins en hægt verður að fylgjast með því hér fyrir neðan.

Hérna má svo nálgast stöðuna í mótinu.