Fréttir

Lokaúrtökumótið í beinni - dagur 2
Bjarki Pétursson.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
laugardaginn 16. nóvember 2019 kl. 12:06

Lokaúrtökumótið í beinni - dagur 2

Annar keppnisdagur lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröð karla fer fram í dag á Lumine golfsvæðinu á Spáni. Blaðamaður Kylfings er á svæðinu og mun flytja fréttir af öllu því helsta sem þar fer fram.

Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Bjarki Pétursson eru allir á meðal keppenda í mótinu og er þetta í fyrsta skiptið sem þrír íslenskir kylfingar leika í lokaúrtökumótinu á sama tíma. Eftir fjóra hringi verður skorið niður í mótinu og halda þá um 70 kylfingar áfram. Til þess að fá fullan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni þurfa strákarnir okkar að enda í einu af 25 efstu sætunum að sex hringjum loknum.

Andri og Guðmundur leika saman í holli í dag eins og í gær. Guðmundur er á fjórum höggum undir pari þegar fréttin er skrifuð á meðan Andri er á parinu. Bjarki fór svo út 20 mínútum seinna og er á einu höggi undir pari eftir níu holur.

Strákarnir leika allir á Lakes vellinum á Lumine svæðinu í dag.

Golfsamband Íslands í samstarfi við Kylfing verður með skor íslensku keppendanna í beinni á Twitter síðu Golfsambandsins en hægt verður að fylgjast með því hér fyrir neðan.