Fréttir

Lowry búinn að draga sig úr heimsmóti vikunnar
Shane Lowry fagnar hér sigrinum um helgina.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 23. júlí 2019 kl. 18:20

Lowry búinn að draga sig úr heimsmóti vikunnar

Írinn Shane Lowry hefur dregið þátttöku sína til baka úr FedEx St. Jude heimsmótinu sem hefst á fimmtudaginn í þessari viku.

Lowry hafði skráð sig í mótið fyrir töluverðum tíma en í dag dró hann sig úr mótinu án nánari útskýringa.

Lowry sigraði eftirminnilega á Opna mótinu um helgina og tryggði sér þar með sinn fyrsta risatitil. Talið er að Lowry sé enn að fagna sigrinum og vilji því ekki taka þátt í sterku móti strax á fimmtudaginn.

Lowry hafði áður sigrað á einu heimsmóti en sá sigur kom einmitt á FedEx St. Jude heimsmótinu fyrir fjórum árum þegar það hét Bridgestone Invitational.