LPGA: Danielle Kang sigraði eftir klúður hjá Ko
Danielle Kang frá Bandaríkjunum vann annað mótið í röð á LPGA mótaröðinni um helgina þegar hún lék best á Marathon Classic mótinu í Ohio fylki.
Sigurinn var ansi dramatískur en Kang var fimm höggum á eftir fyrrum efsta kylfingi heims, Lydia Ko, þegar sex holur voru eftir.
Kang fékk fugl á 13. og 14. holu á meðan Ko tapaði höggum og fékk svo tvöfaldan skolla á lokaholunni.
Þetta var fimmti sigur Kang á LPGA mótaröðinni sem bætti stöðu sína í öðru sæti heimslista kvenna í golfi.
Hér er hægt að sjá lokastöðuna á Marathon Classic mótinu.
Lydia Ko.