Fréttir

LPGA: Hataoka og Yang jafnar á toppnum
Nasa Hataoka.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
fimmtudaginn 17. október 2019 kl. 09:43

LPGA: Hataoka og Yang jafnar á toppnum

LPGA mótaröðin snéri til baka í nótt eftir stutt frí þegar Buick LPGA Shanghai mótið hófst. Eftir fyrsta hring eru tvær jafnar á toppnum á fimm höggum undir pari.

Það eru þær Nasa Hataoka og Amy Yang sem eru jafnar. Þær fengu báðar sex fugla á hringnum í nótt, einn skolla og restina pör og enduðu því hringinn á 67 höggum.

Jessica Korda og Angel Yin eru jafnar í þriðja sæti á fjórum höggum undir pari. Hægt er að sjá stöðuna í mótinu hérna.


Amy Yang.