Fréttir

LPGA: Henderson fór holu í höggi nokkrum mínútum áður en fresta þurfti leik
Brooke M. Henderson.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 14. júní 2019 kl. 09:38

LPGA: Henderson fór holu í höggi nokkrum mínútum áður en fresta þurfti leik

Fyrsti hringur Meijer LPGA Classic mótsins fór fram á fimmtudaginn á LPGA mótaröðinni í golfi. Jenny Shin og Katherine Perry eru í forystu á 6 höggum undir pari en um helmingur keppenda náði ekki að klára fyrsta hringinn áður en fresta þurfti leik.

Ein þeirra sem náði ekki að klára fyrsta hringinn var hin kanadíska Brooke M. Henderson. Hún hefur líklega ekki verið sátt með að þurfa hætta leik enda var hún komin 4 högg undir par eftir fyrstu sex holurnar og nýbúin að fara holu í höggi. Henderson fer út snemma í dag til að klára fyrsta hringinn en hún er jöfn í 4. sæti.

Eins og áður hefur komið fram eru þær Shin og Perry í forystu á 6 höggum undir pari. Höggi á eftir þeim er Mariajo Uribe ein í þriðja sæti.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.