Fréttir

LPGA: Henderson og Park í forystu
Inbee Park.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
föstudaginn 17. janúar 2020 kl. 23:20

LPGA: Henderson og Park í forystu

Annar hringur Diamond Resorts Tournament of Champions mótsins á LPGA mótaröðinni var leikinn í kvöld. Það eru þær Brooke M. Henderson og Inbee Park sem eru í forystu eftir daginn. Þær eru höggi á undan næstu konu.

Henderson er búin að leika hringina tvo á 67 og 66 höggum en hringurinn í dag var besti hringur dagsins. Hún fékk einn skolla en á móti fékk hún fjóra fugla og einn örn. Park lék hringinn í dag á 68 höggum, eða þremur höggum undir pari. Hún fékk 15 pör á hringnum og þrjá skolla. Þær eru samtals á níu höggum undir pari.

Ein í öðru sæti á átta höggum undir pari er Gaby Lopez. Hún lék á 69 höggum í dag, eða tveimur höggum undir pari.

Danielle Kang sem var í forystu fyrir daginn á átta höggum undir pari lék á 73 höggum og er í sjöunda sæti á sex höggum undir pari eftir daginn.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.