Fréttir

LPGA: Kang hóf tímabilið með látum
Danielle Kang.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
fimmtudaginn 16. janúar 2020 kl. 21:42

LPGA: Kang hóf tímabilið með látum

Fyrsta mót ársins og tímabilsins á LPGA mótaröðinni, Diamond Resorts Tournament of Champions mótið, hófst í dag og er það Danielle Kang sem er í forystu eftir frábæran fyrsta hring. Hún er tveimur höggum á undan næstu kylfingum.

Kang lék frábært golf í lok síðasta tímabils en í síðustu þremur mótum endaði hún alltaf á meðal þriggja efstu og vann þar að auki eitt af mótunum. Hún hélt því áfram þar sem frá var horfið í dag og fékk níu fugla á hringnum í dag, fimm á fyrri níu holunum og fjóra á þeim síðari. Á hringnum tapaði hún aðeins einu höggi og endaði því hringinn á 63 höggum, eða átta höggum undir pari.

Jafnar í öðru sæti á sex höggum undir pari eru þær Gaby Lopez, Angela Stanford og Inbee Park. 

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.