Fréttir

LPGA: Kang tyllti sér á toppinn
Danielle Kang.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
laugardaginn 12. júní 2021 kl. 12:59

LPGA: Kang tyllti sér á toppinn

Annar dagur LPGA Mediheal Meistaramótsins var leikinn í gær og er það Danielle Kang sem er í forystu eftir daginn. Hún er höggi á undan næstu kylfingum.

Fyrir gærdaginn var Kang sex höggum á eftir efstu konum. Hún lék aftur á móti frábært golf í gær og kom í hús á 66 höggum, eða sex höggum undir pari, og var það besti hringur gærdagsins. Hún er samtals á sjö höggum undir pari.

Jafnar í öðru sæti eru þær Lauren Kim og Leona Maguire. Maguire var í forystu fyrir gærdaginn á sjö höggum undir pari en lék á höggi yfir pari. Kim hefur leikið báða hringi mótsins á 69 höggum, eða þremur höggum undir pari, og er þær því báðar á sex höggum undir pari.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.