Fréttir

LPGA: Kim fagnaði öruggum sigri
Sei Young Kim.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
mánudaginn 23. nóvember 2020 kl. 15:34

LPGA: Kim fagnaði öruggum sigri

Suður-kóreski kylfingurinn Sei Young Kim fagnaði sínum öðrum sigri á þessu tímabili í gær þegar að hún bar sigur úr býtum á Pelican Women's Championship mótinu. Kim endaði þremur höggum á undan næstu konu þrátt fyrir að leika aðeins á pari vallar í gær.

Fyrir lokadaginn var Kim með fimm högga forystu á Ally McDonald. Kim lék öruggt golf í gær og gaf aldrei mikið færi á sér. Hún fékk þrjá fugla á hringnum í gær og á móti fékk hún þrjá skolla. Lokahringinn lék hún því á 70 höggum og endaði hún mótið á 14 höggum undir pari.

McDonald lék lokahringinn á 68 höggum, eða tveimur höggum undir pari, þar sem að hún fékk fjóra fugla, tvo skolla og restina pör. Hún minnkaði því forystu Kim niður í þrjú högg.

Þetta er 12 sigur Kim á LPGA mótaröðinni en fyrsti sigur hennar kom árið 2015.

Hérna má sjá lokastöðuna í mótinu.