Fréttir

LPGA: Lincicome úr leik vegna Covid-19
Brittany Lincicome. Mynd: golfsupport.nl.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 1. desember 2020 kl. 20:18

LPGA: Lincicome úr leik vegna Covid-19

Tvöfaldi risameistarinn Brittany Lincicome verður ekki með í móti vikunnar þar sem hún greindist með Covid-19 á dögunum.

Lincicome greindi frá því á Instagram síðu sinni:

„Þó ég hafi verið mjög varkár þá fékk ég því miður jákvætt í prófi fyrir Covid-19. Maðurinn minn og stelpan mín eru bæði neikvæð. Ég er nú komin í einangrun og vinn í því að heyra í þeim sem ég hef verið í samskiptum við.

Ég er með væg einkenni en er mjög vonsvikin að þurfa að hætta við þátttöku mína á Volunteers of America Classic. Ég óska öllum góðs gengis og hlakka til að snúa aftur á mótaröðina.“

Vonandi fyrir Lincicome nær hún að snúa sem fyrst aftur á mótaröðina því síðasta risamót ársins, Opna bandaríska mótið, fer fram dagana 10.-13. desember.