Fréttir

LPGA: McDonald landaði sínum fyrsta sigri á afmælisdeginum
Ally McDonald.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
mánudaginn 26. október 2020 kl. 19:33

LPGA: McDonald landaði sínum fyrsta sigri á afmælisdeginum

LPGA Drive On Championship mótið kláraðist í gær á LPGA mótaröðinni. Það var hin bandaríska Ally McDonald sem stóð uppi sem sigurvegari eftir spennandi lokadag. Þetta var hennar fyrsti sigur á LPGA mótaröðinni.

McDonald var með eins höggs forystu fyrir lokadaginn. Hún sýndi lítil veikleikamerki á lokahringnum og kom í hús á 69 höggum, eða þremur höggum undir pari, þar sem að hún fékk fimm fugla, tvo skolla og restina pör. Hún endaði því mótið á samtals 16 höggum undir pari.

Höggi á eftir McDonald varð Danielle Kang. Kang lék á 68 höggum á lokahringnum en fyrir síðasta hringinn var hún tveimur höggum á eftir. Hún endaði því á samtals 15 höggum undir pari.

Ekki nóg með að þetta hafi verið fyrsti sigur McDonald á mótaröðinni þá átti hún einnig afmæli í gær og gat hún því fagnað vel að móti loknu.

Hérna má sjá lokastöðuna í mótinu.