LPGA: Sei Young Kim fer með forystu inn í helgina
Annar hringur á Marathon Classic mótinu á LPGA mótaröðinni var leikinn í gær. Það er hin suður-kóreska Sei Young Kim sem er í forystu þegar mótið er hálfnað en hún er á samtals 11 höggum undir pari.
Hringinn í gær lék Kim á sjö höggum undir pari þar sem hún tapaði ekki höggi en fékk sjö fugla og restin pör. Hún er með eins höggs forystu á samlöndu sína, Jeongeun Lee6.
Lee6 lék hringinn í gær á fimm höggum undir pari, líkt og fyrsta daginn, og er hún því samtals á 10 höggum undir pari. Þrjár eru jafnar í þriðja sæti á 9 höggum undir pari, þær Jennifer Kupcho, Lexi Thompson og Stacy Lewis.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er á meðal keppenda en eins og greint var frá í gær komst hún í fyrsta sinn á þessu tímabili í gegnum niðurskurðinn.