Fréttir

LPGA: Sörenstam lék fyrsta hringinn á 3 höggum yfir pari
Annika Sörenstam.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 26. febrúar 2021 kl. 13:08

LPGA: Sörenstam lék fyrsta hringinn á 3 höggum yfir pari

Sænski kylfingurinn Annika Sörenstam lék í gær sinn fyrsta hring á LPGA mótaröðinni í tæp 13 ár á Gainbridge LPGA mótinu.

Sörenstam fékk alls 15 pör á hringnum en þrefaldur skolli á 5. holu gerðu henni erfitt fyrir. Þá fékk hún skolla á 10. holu en vann höggið til baka með fugli á 14. holu.

Eftir fyrsta hringinn er Sörenstam jöfn í 77. sæti í mótinu og mun berjast um að komast áfram í gegnum niðurskurðinn í dag þegar annar hringurinn fer fram.


Skorkortið hjá Anniku Sörenstam á fyrsta keppnisdegi.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.