Fréttir

LPGA: Þrjár jafnar á toppnum
Nasa Hataoka.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
fimmtudaginn 17. júní 2021 kl. 22:44

LPGA: Þrjár jafnar á toppnum

Fyrsti hringur Meijer LPGA Classic For Simply Give mótsins lauk nú fyrir skemmstu. Þær eru þrjár sem deila efsta sætinu eftir daginn á sjö höggum undir pari.

Nasa Hataoka, Leona Maguire og Charley Hull léku allar á sjö höggum undir pari í dag. Nasa og Leona fengu báðar sjö fugla á hringnum sínum í dag og töpuðu ekki höggi. Á meðan fékk Charley einn skolla, aðeins fjóra fugla en hún fékk aftur á móti tvo erni.

Ariya Jutanugarn og Min Lee eru jafnar á sex höggum undir pari. Það er svo 10 kylfingar jafnir í sjöunda sæti á fimm höggum undir pari.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.