McDowell kylfingur febrúar mánaðar
Evrópumótaröð karla kynnti í dag hver hefði verið kosinn kylfingur febrúar mánaðar en valið stóð á milli þeirra Min Woo Lee, Patrick Reed og Graeme McDowell.
McDowell varð hlutskarpastur með 51% atkvæða. Lee varð næstur með 33% atkvæða og að lokum hlaut Reed 16% atkvæða.
Í febrúar fagnaði McDowell sigri á Saudi International mótinu og var þetta hans fyrsti sigur síðan árið 2014. Þetta var jafnframt 11. sigur hans á Evrópumótaröðinni.