Fréttir

Mcilroy nálægt því að komast áfram eftir hetjulega baráttu
Rory McIlroy.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
föstudaginn 19. júlí 2019 kl. 20:43

Mcilroy nálægt því að komast áfram eftir hetjulega baráttu

Norður-Írinn Rory McIlroy er úr leik á Opna risamótinu sem fer fram á Royal Portrush golfvellinum. Þetta varð ljóst í dag þegar hann kláraði annan hringinn á sex höggum undir pari og var því á tveimur höggum yfir pari í heildina.

Eftir erfiðan fyrsta hring bætti McIlroy sig um 14 högg milli hringja og lék á sex höggum undir pari en það var lægsta skorið á öðrum keppnisdeginum. McIlroy fékk sjö fugla og einn skolla á hringnum og varð að lokum einungis höggi frá því að komast áfram.

Ljóst er að þetta eru mikil vonbrigði fyrir McIlroy en hann setti vallarmetið á Royal Portrush vellinum þegar hann var einungis 16 ára og var því búist við miklu af heimamanninum.

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.