Fréttir

Mickelson mættur til Írlands 8 kg. léttari
Phil nokkuð þyngri en hann er núna.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 16. júlí 2019 kl. 07:07

Mickelson mættur til Írlands 8 kg. léttari

Phil Mickelson er ekkert að grínast þegar hann undirbýr sig fyrir stórmót en hann er mættur til Norður Írlands og vonast til að geta barist um silfurkönnuna, 8 kg. léttari en segist þó ekki vita neitt um hvernig það verði. Phil lýsir því í færslu á Instagram hvernig hann fastaði og fór í 10 daga „átak“ til að létta sig fyrir mótið.

„Let’s get real for few minutes,“ segir hann í myndskeiðinu en þar má sjá að kappinn hefur runnið helling og er klár í baráttuna á Portrush.