Misjafnir lokahringir hjá Berglindi og Guðrúnu í Frakklandi
Berglind Björnsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir luku í dag leik á Montauban Ladies Open mótinu sem er hluti af LET Access mótaröðinni í golfi og fór fram í Frakklandi.
Guðrún Brá lék lokahringinn á 74 höggum og endaði í 42. sæti í mótinu á 10 höggum yfir pari í heildina.
Berglind var í 31. sæti fyrir lokahringinn en kom inn á 81 höggi í dag og endaði í 54. sæti á 14 höggum yfir pari.
Næsta mót á LET Access mótaröðinni er Belfius Ladies Open mótið sem fer fram 27.-29. júní í Belgíu. Þar er Guðrún Brá skráð til leiks en Berglind verður líklega ekki á meðal keppenda.