Fréttir

Molinari endaði titilvörnina á góðum hring
Francesco Molinari.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 21. júlí 2019 kl. 14:01

Molinari endaði titilvörnina á góðum hring

Risameistarinn Francesco Molinari átti einn besta hring dagsins á lokadegi Opna mótsins sem fer nú fram á Royal Portrush golfvellinum í Norður-Írlandi. 

Molinari, sem var sigraði á Opna mótinu í fyrra, hefur farið upp um 34 sæti á síðasta keppnisdeginum en hann lék á 66 höggum eða 5 höggum undir pari.

Alls fékk Molinari þrjá fugla og einn örn á lokahringnum sem var frábært miðað við aðstæður en rok og rigning hefur gert kylfingum erfitt fyrir.

Molinari situr nú í 20. sæti á 3 höggum undir pari en efstu kylfingar eru á fyrri níu holunum á lokahringnum. Hér er hægt að sjá stöðuna.