Fréttir

Mynd: Allt annað að sjá Johnson
Dustin Johnson er búinn að vera með skegg í langan tíma.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 4. ágúst 2020 kl. 11:00

Mynd: Allt annað að sjá Johnson

Nýtt útlit Bandaríkjamannsins Dustin Johnson sló í gegn á samfélagsmiðlum um helgina.

Johnson, sem var á meðal keppenda á St. Jude Invitational mótinu, rakaði skeggið sitt eftir annan keppnisdaginn og neituðu ýmsir netverjar að trúa því að um sama manninn væri að ræða þegar hann mætti til leiks á þriðja keppnisdegi.

Myndir af Johnson fyrir og eftir rakstur má sjá hér fyrir neðan.

Johnson endaði í 12. sæti í mótinu á 8 höggum undir pari og er einn þeirra sem þykir hvað líklegastur til árangurs í PGA meistaramótinu sem fer fram í vikunni.