Fréttir

Myndband: 16. holan á Hvaleyrarvelli opnar 18. ágúst
16. holan lítur vel út. Mynd: Youtube síða Keilis.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
fimmtudaginn 13. ágúst 2020 kl. 11:26

Myndband: 16. holan á Hvaleyrarvelli opnar 18. ágúst

Þann 18. ágúst mun nýja 16. holan á Hvaleyrarvelli opna fyrir golfleik. Slegið er af sama teig og í allt sumar en búið er að vinna að frábærri braut og stórri flöt sem gerir holuna eina af þeim fallegustu á vellinum.

Fyrst um sinn verður ekki hægt að keyra golfbíl á brautinni og verður að gæta sérstaklega að halda hið minnsta 20 metra fjarlægð frá flötinni. Hægt er að keyra vinstra megin í karganum við brautina alla leið niður á flöt.

Hér fyrir neðan má sjá flott myndband sem Guðbjartur Ísak Ásgeirsson, vallarstjóri Keilis, setti saman á Youtube síðu Keilis af nýju holunni.