Fréttir

Myndband: DeChambeau söng með áhorfendum
Bryson DeChambeau. Mynd: golfsupport.nl.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
laugardaginn 14. desember 2019 kl. 10:27

Myndband: DeChambeau söng með áhorfendum

Lokaumferð Forsetabikarsins fer fram í nótt í Ástralíu. Spennan er mikil fyrir lokaumferðina en Alþjóðaliðið er með tveggja stiga forystu á lið Bandaríkjanna, 10-8.

Eitt af augnablikum þriðja dagsins átti sér hins vegar stað á meðal áhorfenda þar sem Bryson DeChambeau sló í gegn.

DeChambeau var í dágóða stund meðal bandarískra áhorfenda sem sungu nokkra söngva, meðal annars um DeChambeau sjálfan eins og sjá má í myndbandi sem PGA mótaröðin birti á samfélagsmiðlum sínum.

Til þessa hefur DeChambeau einungis spilað einn leik en hann tapaði í fyrstu umferð þegar hann lék með Tony Finau gegn Byeong Hun An og Adam Scott. DeChambeau mætir Adam Hadwin í lokaumferðinni.

Hér er hægt að sjá stöðuna.