Fréttir

Myndband: Hvernig endaði þessi ofan í hjá Fowler?
Rickie Fowler.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
laugardaginn 4. júlí 2020 kl. 11:31

Myndband: Hvernig endaði þessi ofan í hjá Fowler?

Bandaríkjamaðurinn Rickie Fowler átti ótrúlegt högg á öðrum keppnisdegi Rocket Mortgage Classic mótinu sem fer fram á PGA mótaröðinni.

Fowler var innan við metra frá holu og púttaði nokkuð ákveðið í holu en boltinn átti eftir að fara rúmlega einn hring á holubarminum áður en hann datt niður. Fowler var að sjálfsögðu hissa á niðurstöðunni eins og sjá má í myndbandinu hér fyrir neðan.

Eftir tvo hringi er Fowler á 6 höggum undir pari jafn í 42. sæti. Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.