Myndband: Keyrðu golfbíl í tjörn á Vestmannaeyjavelli
Myndband af íslenskum kylfingum í Vestmannaeyjum hefur vakið töluverða athygli á samfélagsmiðlum síðustu daga.
Myndbandið er tekið á Vestmannaeyjavelli þar sem tveir aðilar keyra golfbíl beint út í tjörnina rétt fyrir framan flötina á 18. holu með augljósum afleiðingum.
Rétt áður en bíllinn fer í tjörnina kastar farþegi bílsins sér út á ferð en það endaði þó ekki betur en svo að hann lenti frekar illa og endaði í tjörninni.
Samkvæmt heimildum blaðamanns Kylfings er umræddur golfbíll ónýtur. Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.