Fréttir

Myndband: Oosthuizen fór holu í höggi
Louis Oosthuizen.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
sunnudaginn 12. janúar 2020 kl. 16:58

Myndband: Oosthuizen fór holu í höggi

Risameistarinn Louis Oosthuizen fór holu í höggi í dag á lokahringnum á SA Open mótinu sem fór fram á Evrópumótaröð karla í Suður-Afríku.

Oosthuizen, sem leiddi fyrir lokahringinn, þurfti að sætta sig við annað sætið að þessu sinni þar sem samlandi hans, Branden Grace, lék lokahringinn á 9 höggum undir pari og fagnaði sigri.

Hið fullkomna högg Oosthuizen, sem kom honum aftur í forystu á þeim tímapunkti, má sjá hér fyrir neðan.