Myndband: Sjáðu allt það helsta frá fyrsta hringnum á CJ Cup
The CJ CUP @ Nine Bridges mótið á PGA mótaröðinni hófst í nótt í Suður-Kóreu en eins og Kylfingur greindi frá fyrr í morgun er heimamaðurinn Byeong Hun An í efsta sætinu eftir fyrsta hring, höggi á undan Joaquin Nieman.
Hun An lék stöðugt golf í nótt. Á fyrri níu holunum fékk hann fjóra fugla og fimm pör og á síðari níu holunum gerði hann það sama, fjórir fugla og fimm pör. Hringinn lék hann því á 64 höggum, eða átta höggum undir pari.
Annar hringur mótsins fer fram aðfaranótt föstudags en allt það helsta frá fyrsta keppnisdegi má sjá í myndbandi hér fyrir neðan.