Fréttir

Myndband: Sullivan fékk 500 tilraunir til að fara holu í höggi
Andy Sullivan hitar upp. Mynd: EuropeanTour.
Fimmtudagur 25. apríl 2019 kl. 11:26

Myndband: Sullivan fékk 500 tilraunir til að fara holu í höggi

Evrópumótaröð karla fékk á dögunum Andy Sullivan í skemmtilega tilraun þar sem hann fékk 500 tilraunir til að fara holu í höggi á rúmlega 150 metra langri par 3 holu. Áður hafði mótaröðin fengið þá Edoardo Molinari og Brandon Stone til að taka þátt í sömu tilraun.

Líkurnar á því að atvinnukylfingur fari holu í höggi eru 2.500 á móti einum og því vildi Evrópumótaröðin komast að því hvort að Sullivan tækist að fara holu í höggi þegar hann fengi 500 tilraunir við bestu aðstæður.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Ísak Jasonarson
[email protected]