Fréttir

Myndband: Xander Schauffele í skemmtilegum leik með GolfWeek
Xander Schauffele
Fimmtudagur 10. janúar 2019 kl. 08:00

Myndband: Xander Schauffele í skemmtilegum leik með GolfWeek

Í myndbandinu fer hann yfir það hvernig á að bera fram nafnið sitt ásamt því að reyna við það að bera fram nöfn þekktra einstaklinga.

Það hefur kannski ekki farið fram hjá fólki að það var hinn 25 ára gamli Xander Schauffele sem stóð uppi sem sigurvegari á Sentry Tournament of Champions á sunnudaginn eftir að hafa leikið á 11 undir, 62 höggum, á lokahring mótsins.

En það eru samt eflaust margir sem þurfa að hugsa sig aðeins um áður en þeir reyna að segja nafnið hjá Schauffele. Í myndbandinu hér að neðan sést hann bera fram nafnið sitt en í framhaldinu reynir hann að bera fram nöfn þekktra einstaklinga sem margir eiga erfitt með að gera rétt.

Hann virðist skemmta sér ágætlega við þetta en honum tekst þó misvel til.