Ólafía aftur með á LPGA mótaröðinni í vikunni
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, verður á meðal keppenda á Shoprite LPGA Classic mótinu sem fram fer á LPGA mótaröðinni dagana 7.-9. júní.
Þrátt fyrir hafa misst fullan þátttökurétt á mótaröðinni í fyrra fær Ólafía boð á nokkur mót á þessu ári og var hún nú þegar búin að keppa á einu móti í sumar áður en hún öðlaðist þátttökurétt á Opna bandaríska mótinu með glæsilegum árangri í úrtökumóti.
Mótið í vikunni verður því þriðja mót Ólafíu í röð á LPGA mótaröðinni en hún á enn eftir að komast í gegnum niðurskurðinn á þessu tímabili.
Leiknir verða þrír hringir í Shoprite LPGA Classic mótinu sem hefst á föstudaginn og lýkur á sunnudaginn. Eftir tvo hringi í mótinu verður skorið niður.
Árið 2017 lék Ólafía á þessu sama móti en það árið lék hún fyrstu tvo hringi mótsins á 5 höggum yfir pari og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.