Fréttir

Ólafía og Woods úr leik
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Cheyenne Woods.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
fimmtudaginn 18. júlí 2019 kl. 22:54

Ólafía og Woods úr leik

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Cheyenne Woods eru úr leik á Dow Great Lakes Bay Invitational mótinu sem fer fram um þessar mundir á LPGA mótaröðinni.

Mót vikunnar er nýtt á LPGA mótaröðinni en leikið er í tveggja manna teymum og voru þær Ólafía og Cheyenne saman í liði.

Á fyrsta hringnum var leikinn fjórmenningur og spiluðu þær Ólafía og Cheyenne á 6 höggum yfir pari. Í dag spiluðu báðir liðsmenn sínum bolta og taldi betra skorið. Ólafía og Cheyenne léku þann hring á 3 höggum undir pari en það dugði ekki til að komast áfram.

Þegar mótið er hálfnað eru þær Stephanie Meadow og Giulia Molinaro, Celine Boutier og Karine Icher og Paula Creamer og Morgan Pressel jafnar í forystu á 10 höggum undir pari

Hér er hægt að sjá stöðuna í mótinu.