Fréttir

Opnunarmót Jaðarsvallar fór fram um helgina
Mánudagur 20. maí 2019 kl. 11:16

Opnunarmót Jaðarsvallar fór fram um helgina

Opnunarmót Jaðars á Akureyri var haldið á laugardaginn við fínar aðstæður að sögn heimamanna. Um 70 keppendur voru skráðir í mótið og var jöfn keppni um verðlaunasætin, en 9 kylfingar lækkuðu sig í forgjöf.

Það voru ungu piltarnir Lárus Ingi Antonsson og Atli Þór Sigtryggsson sem sigruðu hvorn flokkinn fyrir sig en Lárus lék á fæstum höggum í mótinu (74 höggum) og Atli Þór fékk 41 punkt og varð því efstur í punktakeppninni.

Höggleikur

Lárus Ingi Antonsson - 74 högg
Tumi Hrafn Kúld - 75 högg
Jón Gunnar Traustason - 75 högg

Punktakeppni

Atli Þór Sigtryggsson - 41 punktur
Þorsteinn Ingi Konráðsson - 40 punktar
Guðrún Sigríður Steinsdóttir - 40 punktar

Næst holu

4. hola - Einar Hólmsteinsson 3,11m
8. hola - Víðir Steinar 2,20m
11. hola - Maggi Finns 1,26m
14. hola - Doddi Konn 2,13m
18. hola - Arnar Guðmundsson 3,22m

Ísak Jasonarson
[email protected]