Fréttir

Öruggur sigur Aditi í Kenýa
Sunnudagur 5. febrúar 2023 kl. 16:08

Öruggur sigur Aditi í Kenýa

Aditi Ashog frá Indlandi sigraði örugglega á Magical Kenya Ladies Open. Hún lék hringina fjóra á samtals 12 höggum undir pari en næstar komu Alice Hewson frá Englandi og April Angurasaranee frá Tælandi komu næstar á þremur höggum undir pari. Fyrir sigurinn fékk Aditi 7 milljónir (€45.000) í verðlaunafé. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr golfklúbbnum Keili lék í mótinu en náði ekki niðurskurðinum. Næsta mót á veðrur leikið í Marokkó, Lalla Meryem Cup. Heildarverðlaunafé í mótinu í Marokkó verður 70 milljónir, en var 46 milljónir í Kenýa.