Parið dugði ekki hjá Guðmundi
Guðmundur Ágúst Kristjánsson lék annan hringinn á Ras Al Khaimah Championship á Al Hamra vellinum í Sameinuðu Arabísku furstadæmunum í dag. Hringinn lék Guðmundur Ágúst á einu höggi undir pari. Hann fékk 17 pör á hringnum. Einn fugl leit dagsins ljós á 14. braut, par 5. Guðmundur lauk leik jafn í 88.sæti á pari vallar, en fyrri hringinn lék hann á einu höggi yfir pari.
Niðurskurðarlínan miðaðist við tvö högg undir pari.
Þrír leikmenn eru efstir og jafnir á 11 höggum undir pari eftir tvo hringi, Daninn Rasmus Höjgaard, Skotinn David Law og hinn pólski Adrian Meronk.
Sjá það helsta úr öðrum hring hér.