Fréttir

PGA: Annar sigur Todd í nóvember
Brendon Todd.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
þriðjudaginn 19. nóvember 2019 kl. 10:51

PGA: Annar sigur Todd í nóvember

Mayakoba Golf Classic mótið kláraðist í gær á PGA mótaröðinni en vegna veðurs á fyrsta degi mótsins var ekki hægt að ljúka leik fyrr en í gær. Margir kylfingar náðu þó að ljúka leik á sunnudaginn en efstu mennáttu eftir að leika fjórar holur.

Það var að lokum Brendon Todd sem stóð uppi sem sigurvegari. Hann lék lokahringinn á 69 höggum, eða þremur höggum undir pari, og endaði hann því mótið á samtals 20 höggum undir pari.

Carlos Ortiz, Adam Long og Vaughn Taylor urðu jafnir í öðru sæti á 19 höggum undir pari.

Þetta var annar sigur Todd á stuttum tíma en fyrr í þessum mánuði fagnaði hann sínum fyrsta sigri í rúmlega fimm ár þegar hann stóð uppi sem sigurvegari á Bermuda Classic mótinu.

Hérna má sjá lokastöðuna í mótinu.