Fréttir

PGA: Fáir náð jafn góðum árangri og Si Woo Kim
Si Woo Kim.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
þriðjudaginn 26. janúar 2021 kl. 14:00

PGA: Fáir náð jafn góðum árangri og Si Woo Kim

Si Woo Kim frá Suður-Kóreu er líklega ekki þekktasta nafnið í golfheiminum en þessi 25 ára gamli kylfingur sigraði um helgina á PGA mótaröðinni.

Sigurinn var hans þriðji á þessari sterkustu mótaröð heims en áður hafði hann sigrað á Wyndham mótinu árið 2016 og Players mótinu árið 2017 og er einn af fáum kylfingum utan Bandaríkjanna sem hefur unnið þrjú mót eða fleiri svo ungur.

Justin Ray tók þetta saman á Twitter en auk Kim eru það Rory McIlroy, Sergio Garcia, Hideki Matsuyama, Jon Rahm og Adam Scott sem hafa náð að sigra á þremur mótum fyrir 26 ára afmælið.

3+ sigrar á PGA mótaröðinni fyrir 26 ára (fyrir utan Bandaríkjamenn):

Rory McIlroy
Sergio Garcia
Hideki Matsuyama
Adam Scott
Si Woo Kim

Eftir sigurinn um helgina er Kim kominn upp í 48. sæti á heimslista karla og nálgast nú sína bestu stöðu á listanum.