Fréttir

PGA: Góð skor á fyrsta degi Bermuda Championship
Peter Malnati.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
fimmtudaginn 29. október 2020 kl. 21:38

PGA: Góð skor á fyrsta degi Bermuda Championship

Skor voru góð á fyrsta degi Bermuda Championship mótsins sem hófst í dag á PGA mótaröðinni. 98 kylfingar léku á pari eða betur í dag en alls eru 132 kylfingar sem hófu leik. Efstur er Peter Malnati eftir frábæran hring en hann er þó aðeins einu höggi á undan næstu mönnum.

Malnati var í miklu stuði framan af hring og var hann kominn átta högg undir par eftir 13 holur. Hann nældi sér í einn fugl til viðbótar en fékk einn skolla á móti. Hringinn endaði hann því á 63 höggum, eða átta höggum undir pari.

Næstir koma þeir Doug Ghim og Ryan Armour. Þeir léku báðir á 64 höggum, eða sjö höggum undir pari.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.