Fréttir

PGA: Hadley í forystu í hálfleik
Chesson Hadley.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
laugardaginn 12. júní 2021 kl. 12:45

PGA: Hadley í forystu í hálfleik

Bandaríkjamaðurinn Chesson Hadley er í forystu þegar tveimur hringjum er ólokið á Palmetto meistaramótinu. Hann er tveimur höggum á undan efsta manni heimslistans, Dustin Johnson.

Hadley lék fyrsta hring mótsins á 65 höggum og fylgdi þeim hring eftir með hring upp á 66 höggum í gær. Hann er því samtals á 11 höggum undir pari. 

Johnson er eins og áður sagði tveimur höggum á eftir Hadley en fyrir lokaholu gærdagsins var Johnson jafn Hadley. Hann fór aftur á móti illa að ráði sínu á holunni og fékk tvöfaldan skolla. Hringinn lék hann því á 68 höggum, eða þremur höggum undir pari, og er hann samtals á níu höggum undir pari.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.


Dustin Johnson.