Fréttir

PGA: Hatton einnig með Covid-19
Tyrrell Hatton.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
miðvikudaginn 28. apríl 2021 kl. 09:19

PGA: Hatton einnig með Covid-19

Fyrr í vikunni greindi Kylfingur frá því að þrír kylfingar á PGA mótaröðinni gætu ekki tekið þátt á Valspar meistaramótinu vegna Covid-19. Nú hefur sjá fjórði greinst með Covid-19 og er það Englendingurinn Tyrrell Hatton.

Hatton, sem situr í 8. sæti heimslista karla í golfi, var liðsfélagi Danny Willett á Zurich Classic mótinu um síðustu helgi. Ekki er ljóst hvort Willett missi af mótinu í kjölfar þess að Hatton greindist.

Í stað Hatton mun Kiradech Aphibarnrat spila á Valspar meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn.