Fréttir

PGA: Spieth og Kokrak í sérflokki
Jordan Spieth.
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
sunnudaginn 30. maí 2021 kl. 12:52

PGA: Spieth og Kokrak í sérflokki

Það má segja að þeir Jordan Spieth og Jason Kokrak séu í hálfgerðum sérflokki fyrir lokahring Charles Schwab Challenge mótsins á PGA mótaröðinni sem fer fram í dag. Þeir eru fjórum og fimm höggum á undan næsta manni.

Spieth og Kokrak voru höggi frá hvor öðrum fyrir þriðja hringinn og breyttist sú staða ekkert að honum loknum. Þeir léku báðir á 66 höggum í gær, eða fjórum höggum undir pari. Spieth er á samtals 15 höggum undir pari fyrir lokahringinn og Kokrak er á 14 höggum undir pari.

Sergio Garcia er einn í þriðja sæti á 10 höggum undir pari og tveimur höggum á eftir honum eru þeir Ian Poulter og Sebastián Munoz.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.