Fréttir

PGA: Spieth og Mickelson úr leik
Jordan Spieth.
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
laugardaginn 22. júní 2019 kl. 11:30

PGA: Spieth og Mickelson úr leik

Annar hringur Travelers meistaramótsins fór fram á föstudaginn. Mótið er hluti af PGA mótaröðinni og eru margir af bestu kylfingum mótaraðarinnar meðal keppenda.

Eftir tvo hringi er nokkuð óþekktur kylfingur, Zack Sucher, á 11 höggum undir pari. Sucher, sem er í 222. sæti FedEx stigalistans, er tveimur höggum á undan þeim Chez Reavie og Keegan Bradley sem deila öðru sætinu.

Brooks Koepka komst í gegnum niðurskurðinn á Travelers mótinu eftir flottan annan hring (-4). Koepka var á höggi yfir pari eftir fyrsta hringinn en hann er jafn í 47. sæti í mótinu.

Phil Mickelson, Jordan Spieth og Tony Finau komust ekki í gegnum niðurskurðinn að þessu sinni. Spieth sigraði á þessu móti árið 2017 en það er næst síðasti sigur kappans á PGA mótaröðinni.

Þriðji og næst síðasti hringur mótsins fer fram á laugardaginn. Hér er hægt að sjá stöðuna.